23.9.2008 | 01:18
PÓSTHÓLF FYRIR MÖMMU MÍNA.
Komiði sæl.
Það hefur lengi verið vandamál að koma til okkar pósti þar sem heimilsfangið hljómaði einhvern vegin svona (dálítið fært í stílinn en samt satt!):
Fjóla Björnsdóttir
Mauragötu 8,
6,5 km frá aðaltorginu beint í Norður. Bak við bensínstöð Alí gamla (sem reyndar er búin að selja hana stórri þjónustukeðja). Beygt til hægri við stóra mangótréð það sem trífætti hundurinn liggur þegar ekki rignir.
Santa Cruz, Bolivia.
Það liggur nú eiginlega í augum upp að pósturinn barst seint og illa. Besta ráðið var að senda jólapakkana til tengdamömmu í La Paz (þar sem sumir hlutir eru þróaðri en hér, m.a. póstþjónusta) og biðja hana svo að koma pökkunum til okkar með DHL.
En nú hljómar adressan semsagt svona:
Fjóla Björnsdóttir
Casilla Postal 293
Correo Central.
Santa Cruz, Bolivia.
Mun einfaldara ekki satt. Ég bind miklar vonir við þetta nýja Pósthólf nr. 293. Og ég veit að það gerir elsku mamma mín líka.
Bið að heilsa.
Um bloggið
Fjóla Björnsdóttir
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jæja, þá getur hún farið að senda afmælispakkann til Sabrínu án þess að vera alltaf að spá í hvort hann kemst til skila eða ekki
Birna (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 10:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.